Í dag samanstendur Gorenje samsteypan – Gorenje Domestic Appliances – Gorenje d.d. – af 47 sjálfstæðum einingum. Á síðustu árum hafa allar deildir samsteypunnar verið í örum vexti sem er afleiðing mikillar vöruþróunar, endurbættrar framleiðslu, virkrar dreifingar og sölunets og stöðugt vaxandi markaðshlutdeildar.
Þrátt fyrir að aðstæður í heiminum hafi ekki verið hagstæðar hefur Gorenje Group náð að halda markaðsstöðu sinni meðal 8 stærstu framleiðenda heimilistækja í Evrópu og flytur nú út 84% af framleiðslunni.
Gorenje d.d. er ábyrgt fyrir framleiðslu og sölu á heimilistækjum. Uppbygging nýrra verksmiðja og endurbætur á þeim eldri ásamt þróunarvinnu vöruúrvals eru grunnforsenda þess að heimilistækjadeildin stækkar hraðast innan samsteypunnar.
Velgengni Gorenje má líka skrifa á sterkt net fyrirtækja og söluumboða um alla Evrópu. Erlend dótturfyrirtæki eru flest sjálstæðar einingar með þeirra eigin sölunet og þjónustukerfi.
Þrátt fyrir að aðal markaðssvæði Gorenje Group sé innan EE hefur Gorenje undanfarið stækkað markaðssvæði sitt til austur og suðaustur Evrópu.
Allar þessar ástæður gera það að verkum að Gorenje Group er í dag eitt af stærstu iðnfyrirtækjum Slóveníu ásamt því að vera leiðandi framleiðandi heimilistækja í Evrópu.
|