Danska dótturfyrirtækið var stofnað árið 1976 og bar ábyrgð á öllum norðurlöndunum og löndum Balkan skagans.
Í dag eru starfsmenn 115 og eru flestir í höfuðstöðvum okkar í Rødovre. Frá höfuðstöðvunum og þjónustumiðstöðinni í Rødovre liggur dreyfinet um öll norðurlöndin.
Sala á Gorenje heimilistækjum hófst á Íslandi fyrir um 25 árum. Johan Rönning hf tók við umboðinu árið 1988 og hefur sala farið vaxandi ár frá ári og merkið er stöðugt að sækja á hinum íslenska markaði. Gæði Gorenje heimilistækjanna eru orðin vel þekkt í dag og áhersla Gorenje á einfalda en um leið glæsilega hönnun hefur fallið Íslendingum vel í geð.