Markmið

Gorenje samsteypan einbeitir sér að framleiðslu heimilstækja.  Ávallt er gerð sú krafa að áhersla sé lögð á þróun vörumerkja og tækja, og að viðskiptavinurinn fái notið þeirra þrónnar gegnum dreyfingar- og sölunet Gorenje.

Gorenje einbeitir sér aðallega að evrópskum markaði og telur að austur og suðaustur evrópa séu þeir markaðir sem í dag bjóða upp á mestu stækkunarmöguleikana.  Einnig er það markmið Gorenje að koma að framleiðslu sinnar vöru innan þessara landa í samvinnu við þau fyrirtæki sem til eru heimafyrir og uppfylla kröfur Gorenje.

Samstarfsaðilar Gorenje njóta allrar þeirra þjónustu og þekkingar sem Gorenje hefur upp á að bjóða.  Með stækkun markaðssvæða er stöðug aukning samstarfsaðila alltaf forgangsatriði.

Stefna

Markaðshlutdeild:

Markmið Gorenje er að ná góðri markaðshlutdeild á hverju því landi sem fyrirtækið starfar.  Stærstu svæðin eru heimamarkaður og löndin í suðaustur Evrópu.  Kjarnafyrirtæki sjá um framleiðslu og sölu á heimilstækjum og tengdum vörum ásamt eldhús- og baðinnréttingum.  Flestar vörur Gorenje eru framleiddar í eigin verksmiðjum þó nokkrar séu framleiddar af öðrum.

Vörumerki:

Markmið um árlegan hagnað af sölu hvers einstaks vöruflokks er nauðsynlegt til að geta unnið að þeirri þróunarvinnu sem nauðsynleg er til að vera ávallt fremst í flokki framleiðenda heimilstækja.  Í löndum suðaustur Evrópu og Slóvaníu sjást stærstu sölutölur Gorenje.  Fjárhagslegur styrkur er stór liður í þeirri stefnu að styrkja Gorenje merkið og að halda markaðstöðu sinni á hverjum markaði fyrir sig.

Gæði og þróun:

Áframhaldandi notkun og þróun gæðakerfa (20 keys-system, Business Exellence, ISO o.fl. alþjóðleg kerfi).  Innleiðing gæðaeftirlits við framleiðslu og samsetningu.  Ákveðin stefna í eftirþjónustu.  Dregið verður úr kostnaði við spilliefni og framleiðslu sem ekki uppfyllir umhverfissjónarmið.

Mannauðsstjórnun:

Mannauðsstjórnun er ein af grundvallar hugmyndum Gorneje samsteypunnar.  Markmiðið er að hver starfsmaður nýti sýna reynslu og þekkingu sem best, bæði fyrir fyrirtækið og til hagsbóta fyrir sig sjálfan.  Ánægðir starfsmenn skila betri vinnu.