Markmið og stefna
Aðalmarkmið Gorenje er framleiðsla og dreyfing heimilstækja sem einkennast af miklum gæðum, hönnun sem eru neytenda- og umhverfisvæn.
Einnig leggur Gorenje áherslu á að stækka og þróa öll núverandi hliðarfyrirtæki og auka þar með styrk kjarnastarfseminnar. Má þar nefna framleiðslu á vélum, verkfærum, húsgögnum, vatnshiturum, þjónusta við tölvu-, matvæla- og ferðamannaiðnaðinn og önnur sérhæfð verkefni.
Stefna
Fyrirtækin í Gorenje samsteypunni hafa undanfarin ár – og enn í dag – staðið fyrir miklum breytingum og þróun. Það er mjög mikilvægt að styðja vel lifandi og arðbærar einingar sem hafa það að markmiði að halda sig skrefi framar en samkeppisaðilarnir. Það er einnig mikilvægt að fylgjast vel með umhverfinu og að fyrirtækin séu ávallt sveiganleg og tilbúin að aðlaga sig breyttum aðstæðum.
Eignarhaldsfélagið og Gorenje samsteypan leggur mikið upp úr þeirri þekkingu sem safnast hefur saman síðustu 50 árin og nýtir alla þá þekkingu til að gefa Gorenje möguleika á að ná þeim markmiðum sem fyrirtækið setur sér.
Gorenje setur sér það markmið að vera sveigjanlegt á öllum sviðum
Þetta markmið krefst þess að stöðugt sé fylgst með öllum breytingum í viðskiptaumhverfi, allir möguleikar séu nýttir og að á hverjum markaði fyrir sig sé fylgst með og að fyrirtækið sé ávallt tilbúið að bregðast við breytingum á markaðinum.
Þess vegna er mikilvægt að atriði eins og tækniþróun sé ávallt fyrsta flokks, framleiðsluaðferðir og framleiðsluaðstaða sé til fyrirmyndar og þjónustustig sé hátt.
Það er markmið Gorenje að skila öllum þessum atriðum til sinna viðskiptavina þannig að þeir geti treyst því að þeir séu ávallt að skipta við framsækið fyrirtæki sem leggi allan sinn metnað í ánægða viðskiptavini.
|