|
|
|
- Gorneje er stofnað í litlum bæ með sama nafni.
- Í byrjun var aðalframleiðsla landbúnaðartæki og dreyfing byggingarefnis.
- 1958 var hafin framleiðsla á eldavélum og í framhaldi af því flutti starfsemin til Velenje og byggð var ný verksmiðja.
|
|
|
|
- Fyrirtækið hefur framleiðslu þvottavéla og kæliskápa og verður leiðandi framleiðandi heimilistækja í Júgósalvíu.
- Fyrstu tækin voru flutt út árið 1961 – 200 eldavélar voru seldar til Þýskalands.
|
|
|
|
- Gorenje fer að kaupa önnur fyrirtæki.
- Vöruúrvalið eykst og farið er að framleiða eldhúsinnréttingar, flísar, ýmsar vélar, samskiptatæki, sjónvörp og önnur raftæki – heildar úrval af vörum fyrir heimilið.
- Hjá fyrirtækinu starfa um 20.000 manns og það er með starfsemi í flestum landshlutum Júgóslavíu.
- Fyrstu skrefin í átt að stofnun sölu- og dreyfingarnets um vestur Evrópu eru tekin og fyrirtæki stofnuð í Þýskalandi, Austurríki, Frakklandi, Danmörku, Ástralíu og Ítalíu.
|
|
|
|
- Á þessu tímabili var dregið úr fjárfestingum og hagrætt í rekstri.
- Áhersla var lögð á þau svæði þar sem Gorenje var með mikil umsvif og háa markaðshlutdeild í heimilistækjum.
- Útflutningssvæðið stækkaði og flutt var út til Bretlands, Írlands og Bandaríkjanna.
|
|
|
|
- Gorenje breytist úr miðstýrðu sósíalísku fyrirtæki í einkarekið fyrirtæki með starfsemi í stækkandi markaðshagkerfi.
- Vegna þess tapreksturs á heimamarkaði sem var afleiðing þeirrar upplausnar sem átti sér stað í Júgóslavíu var áherslan lögð á útflutning.
- Stofnun fyrirtækja í Austur Evrópu (Tékkóslóvakíu, Ungverjalands, Póllands, Búlgaríu og Slóvakíu) var möguleg vegna þeirra breytinga sem urðu á þessu svæði ásamt þróunar hins nýja markaðshagkerfis.
- Að auki voru stofnuð fyrirtæki í þeim nýju ríkjum sem til urðu við skiptingu Júgóslavíu.
|
|
|
|
- Eftir þessar miklu breytingar var Gorenje orðið einkarekið hlutafélag.
- Á síðustu árum hefur starfsemi fyrirtækisins einkennst af aukinni tækniþróun ásamt því að mikil vinna hefur verið lögð í að taka upp umhverfisstaðla.
- Einnig hefur áhersla verið lögð á að byggja upp markað í fyrrum Júgóslavíu.
- Á síðustu 10 árum höfum við séð stórar fjárhæðir lagðar í þróunarvinnu og tæknivæðingu framleiðslulína, ný markaðssvæði hafa bæst við, umhverfisvernd hefur orðið sífellt stærri liður, ný verksmiðjuhús hafa verið byggð og framleiðsla er hafin á plastílátum.
- Framleiðsluvörur Gorenje eru þekktar fyrir mikil gæði, nútímalega hönnun ásamt þeirri staðreynd að þau eru sparneytin og umhverfisvæn.
|
|
|