Ion Generation

ION generation kæli- og frystiskáparnir eiga svo sannarlega sinn þátt í að gera Gorenje eitt af vinsælustu vörumerkjunum á markaðnum. Gæðin og notagildið skína alls staðar í gegn, í gegnum öll efni, útlitshönnun, hagkvæmar hillur og fjöldi annarra gagnlegra eiginleika. Við þróun línunnar sóttumst við sérstaklega eftir því að ná fram besta mögulega hitastiginu í skápunum. Undirstaða þessarar þróunar er IonAir-tæknin sem líkir nákvæmlega eftir náttúrulegu ferli jónunar og frískar upp á loftið í kæliskápnum. Við höfum komið fyrir fullkomnum loftræstikerfum til að tryggja að loftið flæði vel um allan skápinn og flytji súrefni út í alla kima – MultiFlow 360˚ í öflugri gerðunum og DynamiCooling í grunngerðum nýju kynslóðarinnar. Þessi sveigjanlega tækni sem við höfum innleitt í skápana er sérlega framsækin og einstök á markaðnum. Um er að ræða afar snjallt kerfi með skynjurum sem greinir bæði venjur notandans og viðheldur jöfnu hitastigi og fullkomnu loftflæði.

Við bjóðum þér að kynnast ION generation, nýrri kynslóð Gorenje-kæliskápa sem hefur verið hönnuð í góðri samvinnu við náttúruna.

Haltu í ferskleikann

Eina leiðin til að halda heilsu er að borða heilsusamlegan mat. Úr hollum mat fær líkaminn vítamín, steinefni og trefjar sem eru nauðsynleg til að viðhalda rétt samsettu mataræði. Það eru ekki allir svo heppnir að geta sótt sér ferskt grænmeti beint úr garðinum.

Flestir versla í matinn fyrir nokkra daga í senn. Ef maturinn er ekki geymdur með réttum hætti tapar hann næringargildi sínu mjög fljótt og verður gróðrarstía fyrir bakteríur og örverur. Slíkum mat hendum við að lokum. Því ætti ekki að koma á óvart að einstaklingur á meðalheimili hendir u.þ.b. 180 kg af mat á ári. Sérfræðingar Gorenje hugsuðu fyrir hverju smáatriði sem kom að gagni við að skapa ákjósanleg skilyrði til að viðhalda ferskleika og náttúrulegum vökvum í matvælum.

Hér eru taldir upp nauðsynlegir eiginleikar sem þarf til að viðhalda fersku og náttúrulegu lofti í kæliskápnum.

DynamiCooling

Jafnt hitastig í kæliskápnum
Betri loftræstieiginleikar vinna í samræmi við kraftmiklar kælingaraðferðir til að viðhalda jöfnu hitastigi í öllum kæliskápnum. Virkni DynamiCooling leggur sitt af mörkum til orkusparnaðar og það flokkast sem kerfi með vistvæna eiginleika. Í grunngerðunum vinnur það með IonAir en í öflugri gerðum með IonAir MultiFlow 360° kerfinu.

AdaptTech-kæling

Heldur matnum ferskum 20% lengur
Sveigjanlegt snjallkerfi sem fylgist með, greinir og skráir notkun kæliskápsins með vikulegu millibili. Í samræmi við greininguna á notkunarmynstrinu er svo stýringunni hagrætt, einkum hitastigsstillingum og rafmagnsnotkun. Komið er í veg fyrir að hitastig matarins hækki þegar hurðin er opnuð eins og í hefðbundnum kæliskápum, sem kemur svo aftur í veg fyrir bakteríumyndun.

CrispZone með HumidityControl

Ávextir og grænmeti bragðast eins og beint úr garðinum
Grænmeti og ferskir ávextir skemmast og rotna mun auðveldlegar en aðrar matartegundir. Ásamt því að halda öllum tegundum ávaxta og grænmetis ferskum býður þessi rúmgóða 36 l skúffa upp á stillingu rakastigs. Auðvelt er að stilla rakastigið með HumiditySlider og lengja þannig líftíma þessara matartegunda.

ZeroZone

Fullkomið fyrir kjöt og fisk
Matvörur á borð við ferskt kjöt, fisk og sjávarfang þurfa sérstaka meðhöndlun, einkum á heitari árstímum. ZeroZone-skúffan heldur alltaf hitastiginu við 0 °C og heldur þannig ferskleika og næringargildi viðkvæmra matvæla lengur ásamt því að halda þeim safaríkum. Skúffan er besti staðurinn til að geyma kjöt eða fisk í kryddlegi í nokkrar klukkustundir fyrir matreiðslu.

SuperCool-valkostur

Tilvalinn fyrir nýjar birgðir
Stöðugt hitastig er mikilvægasti eiginleikinn í kæliskápnum. Þegar kæliskápurinn er birgður upp með miklu magni af nýjum matvælum hækkar hitinn í skápnum. Þar af leiðandi er þessi eiginleiki afar hentugur þegar þú hefur staðið í stórinnkaupum. Eftir að kveikt er á eiginleikanum er hann virkur í sex klukkustundir og heldur á meðan hitastiginu 3 °C lægra en venjulega.

FastFreeze-valkostur

Hraðari frysting
Eiginleiki til að hraða frystingu, tilvalinn eftir stóra verslunarferð. Hentar sérlega vel til að frysta mat í miklu magni. Eftir að kveikt er á eiginleikanum er hann virkur í 50 klukkustundir og heldur á meðan hitastiginu við -24 °C.

Vertu klár á kælingunni

Alla dreymir um að eignast kæliskáp eins og þann sem við sjáum í tímaritum. Snyrtilegan, auðveldan í notkun og alltaf allt í röð og reglu. Við vitum að þetta er ekki létt verk. Af þeim sökum höfðum við þetta markmið að leiðarljósi við hönnun nýrrar kynslóðar Gorenje kæli- og frystiskápa. Skoðum nú hvað er þarna inni!

PullOut

Togaðu í hilluna og gríptu það sem þig langar í
Rennihillurnar gera þér kleift að nálgast allt í kæliskápnum fljótt og auðveldlega. Aðgengi að matvörunum er greitt þannig að þú þarft ekki lengur að grafa þig inn í skápinn til að ná í mat sem geymdur er aftast í honum. Hillurnar eru úr hertu gleri sem er einstaklega endingargott og getur borið allt að 22 kg.

XXL SpaceBox-skúffa

Nægt pláss fyrir stærstu matarbitana
Stærsta skúffan í öllum kæliskápnum er staðsett í frystihólfinu þar sem auðvelt er að koma fyrir fyrirferðarmiklum matvælum. Þar er lítið mál að frysta kalkún, stór kjötstykki, pítsukassa eða heilar tertur. Auk þess er hægt að skapa enn meira pláss með því að taka skúffuna út.

Verum vistvæn

Kæliskápurinn er eina heimilistækið sem er í gangi allan sólarhringinn. Þar af leiðandi nýtir hann mikla orku. Hin nýja kynslóð kæli- og frystiskápa frá Gorenje sameinar háa orkuflokka og aðrar breytur sem spara orku og spara þér peninga.

Gallery

Vörur