Æ-æ, ekki þó aftur! Þú leitar í örvæntingu að laxinum sem þú komst svo stolt fyrir í frystinum þegar þú hafðir veitt hann. Þú leitar og leitar, gegnum endalausar hrúgur af pokum með baunum og gulrótum, sem eru fastir við frystinn því þú hefur ekki alveg komist í að afþíða skápinn nýlega.
Aðstæðurnar kannast flestir við. Dugmikill frystir getur verið afar þreytandi ef maður er vanur að henda mat inn í hann kæruleysislega – án merkinga, án kerfis, án þess að þrífa og án þess að þíða. Einhvern veginn svona er ástandið á býs a mörgum heimilum. Hér eru nokkur ráð til að hjálpa þér að koma frystinum í gagnið.
|