Svona má halda berjum aðskildum í frystinum

Forðist vatnskennd ber

Ef þú vilt komast hjá því að frysta ber í tveimur skrefum skaltu fá þér No Frost frysti. Slíkur frystir kemur sjálfkrafa í veg fyrir að berin frjósi saman.

Frystu þau aðskilin

Það er einn af þessum dögum. Eftir aðeins nokkrar klukkustundir eru gestirnir væntanlegir í áramótakvöldverðinn og ekkert eftir nema að stinga frískandi frystu brómberi í hvert glas, í stað ísmola. Eini vandinn er … að brómberin hafa frosið saman í einn geigvænlegan klump. Næst skaltu gera þetta svona: leggðu berin á bakka, í lögum, þannig að þau snerti ekki hvert annað. Eftir sólarhring skaltu hrúga þeim saman í plastpoka. Þegar þau hafa frosið hvert fyrir sig loða þau ekki saman. Gagnlegt og hátíðlegt.