Svona finnurðu besta grænmetið að vetrarlagi

Að frysta vel

Gættu þess að vörunum sé pakkað í sterka, innsiglaða poka sem verja innihaldið gegn þurrki, bragðrýrnun og næringartapi. Djúpfrysting verður að standa undir nafni: varan þarf raunverulega að vera djúpfrosin þar til þú notar hana. Ef þú notar ekki allan skammtinn í einu er mikilvægt að þú lokir pokanum almennilega og komir honum aftur fyrir í frystinum tafarlaust.

Tíndu það úr frystinum þínum

Ekkert er yndislegra en ferskar baunir og annað nýsprottið góðmeti. Sem betur fer er nautnin af ferskum mat ekki bundin sumrinu. Fryst grænmeti heldur bragði, áferð og næringargildi vel, ef það er geymt við -18 °C eða meira og því hefur verið pakkað dyggilega til að koma í veg fyrir oxun og þurrk. Þegar líður á veturinn er frosið grænmeti raunar ríkara af vítamínum heldur en ferskt. Því er í góðu lagi að borða frosið grænmeti.