Svona þíðirðu frysti með léttum leik

Haltu þig í orkufl okki A

Frystar sem ekki eru afþíddir nota meiri orku vegna þessara stóru íshlunka. Það þýðir að þó svo að orkunýting frystisins þíns sé í A-fl okki, geta afköst hans lækkað niður í B-fl okk eða C, ef hann er ekki þíddur almennilega. Sjálfþíðandi frystir helst í orkufl okki A ár eftir ár eftir ár.

Gufa eða No Frost

Öll höfum við lent í því. Hunsað frystinn aðeins of lengi og nú geturðu ekki lokað aftur hurðinni vegna ísjakans sem hefur sest þar að. Hvað er til ráða? Í öllu falli ekki að nota hárþurrkuna eða rafmagnshitara til að hraða ferlinu. Hiti getur valdið kæligrindunum alvarlegum skaða. Notaðu aldrei beitt áhöld sem geta hoggið í rörin í kerfi nu. Þú ættir líka að varast leysandi efni, úða og þess lags, þar sem þau geta eyðilagt plasthluta skápsins og verið heilsuspillandi. Þess í stað geturðu gert tvennt: Sett skál með volgu vatni í frystinn – sem tekur augljóslega nokkurn tíma, eða þá valið sjálfþíðandi No Frost frysti frá Gorenje.