Svona frýs – 10 reglur frystingar

10 reglur frystingar

1 Hafðu í huga að ekki er hægt að frysta allt.
2 Matur þarf vitaskuld að vera ferskur áður en hann er frystur.
3 Pakkaðu vel og vandlega.
4 Matur ætti að vera í vandlega lokuðum, ólekum ílátum. Leki rýrir vítamíninnihald matarins og veldur þornun.
5 Umbúðir ættu að vera merktar með þessum upplýsingum: innihaldi, magni og dagsetningu.
6 Það er afar mikilvægt að matur sé frystur hratt. Því er mælt með að skammturinn sem frystur er sé ekki of stór..
7 Matarmagn í frystinum ætti ekki að fara fram úr hámarksmagninu sem lýst er á merkingunni „freezer capacity“. Ef of mikið er geymt í frystinum í einu ruglast hann í ríminu og starfar því ekki með fullri getu, sem hefur áhrif á gæði frystu matvælanna.
8 Haltu þig við þau tímamörk sem mælt er með að matur sé frystur. Sjá töfluna í lok þessa kafla.
9 Þiðnuð eða hálf-þiðnuð matvæli ætti að matreiða eða snæða eins fljótt og hægt er. Kalt loft geymir matinn en drepur ekki örverurnar sem spilla honum.
10 Afþíddu frystinn reglulega. Helst þegar ísingin á honum er 3-5 sm þykk. Þrífðu og þurrkaðu innra byrði frystisins. Því oftar sem þú afþíðir hann, því auðveldara er að fjarlægja ísinguna.