Svona heldurðu afskornu grænmeti stökku

Sköllóttur? Fáðu þér lauk

Rómverjar börðust um margt og reyndu meðal annars að sigrast á skalla. Sagan segir að Neró keisari (Rómarkeisari frá 54-68 e.Kr.) hafi talið blaðlauk bæði góðan fyrir raddböndin og fela í sér lækningu við skalla. Kenningin hefur enn ekki verið sönnuð.

Leggðu það í bleyti

Það hljómar út í hött að láta blaðlauk, sellerí, graslauk og annað grænmeti á stilk í vasa. En hugmyndin er ekki jafn biluð og hún hljómar. Vatn hjálpar grænmetinu að geyma vökva, og varðveitir þannig bæði safa og bragð þar til þau eru skorin og tilbúin til matreiðslu. (Þegar gestirnir koma eru vasarnir tilbúnir undir blómin sem þeir færa gestgjafanum góða).