Ráð til að geyma agúrkur

Græn lækning?

Í aldanna rás hafa margir lofað heilnæm áhrif agúrkunnar. Grikkir og Róm-verjar til forna eru sagðir hafa borðað eina agúrku á dag, til að verjast sjúkdómum. Konur hafa um aldabil gert andlitsmaska úr gúrkum, hökkuðum eða sneiddum.

Settu hana upp í hillu

Agúrka er að mestu leyti gerð úr vatni. 97 prósent hennar er vatn. Vatnsmagnið gerir agúrkur sérlega viðkvæmar fyrir hnjaski og loftbreytingum. Vegna þess hve auðveldlega agúrkur láta á sjá geturðu ekki lagt grasker eða vatnsmelónur ofan á þær en það vissirðu trúlega fyrir. Það sem öllu máli skiptir er hitastigið: Agúrkur geta skemmst í ísskáp, fengið sokkna bletti og hold þeirra orðið hálfgegnsætt, ef þær eru geymdar við of mikinn kulda, til dæmis á hillu í ísskápnum. Geymdu gúrkuna við 8°C, til dæmis í grænmetisskúff unni í ísskápnum.