Svona bragðast berin best

Notaðu sigti

Ef þú verður að geyma berin þín í ísskápnum í nokkra daga og ert ekki svo lánsamur eða lánsöm að eiga ísskáp með 0-svæðis hillu, skaltu skola berin og setja þau í sigti, þar farnast þeim betur. Lestu meira um 0-svæðis hilluna í kafl anum kæling.

Tíndu og njóttu

Í dag er hægt að kaupa jarðarber allt árið um kring. Eftirvæntingin að stinga tönnunum á bólakaf í holdmikið jarðarberið, ferskt af markaðnum eða, enn frekar, nýtínt úr beði nágrannans. Því jarðarber er sannarlega best að bera fram og borða jafnharðan og þau eru tínd. Jarðarber, brómber, stikkilsber, bláber, jiminneini! Þessi litlu ber skemmast auðveldlega og halda sér ekki vel í kæli. Það jaðrar við virðingarleysi að geyma þau dögum saman. Nema, vitaskuld, þú sért svo lánsamur eða lánsöm að eiga kæli með 0-svæðis skúff u. Þar geymast ávextir og ber allt að þrisvar sinnum lengur en ella.