Svona skal geyma epli, plómur, ferskjur og perur

Um etýlen

Tómatar og agúrkur bæta hvort annað upp í salatskál, en í raun er agúrkan afar viðkvæm fyrir etýlen-loftinu sem tómatarnir gefa frá sér. Því skal geyma tómata með eplum, plómum, ferskjum og perum en halda þeim fj arri öðrum ávöxtum og grænmeti …

Láttu þau eiga sig

Ávextir eru ekki allir félagslyndir. Epli, plómur, ferskjur og perur gefa frá sér etýlen-loft sem hrindir af stað þroskaferli allra hinna ávaxtanna. Bananar og agúrkur eru sérstaklega viðkvæm fyrir etýleni. Ef þú vilt stökkan banana í bananasplittið þitt skaltu því halda honum frá hinum ávöxtunum. Leggðu þessa vísu á minnið: Epli, plómur, ferskjur og perur eru ekki félagsverur, epli, plómur, ferskjur og perur eru ekki félagsverur.