Besta leiðin til að varðveita framandi grænmeti

Löng leið fyrir langan ávöxt

Eggaldin barst til Evrópu á 18. öld en varð ekki algengt fyrr en á síðustu áratugum. Ílöng, fj ólublá belglaga eggaldin eru algengust, þó að tilbrigðin séu býsna mörg. Kringlótt, hvít, gul, blá, fj ólublá – hugsanlega munu þau dag einn berast í öllum regnbogans litum. Hver veit?

Búðu því hlýjan samastað

Nú er tímabært að nefna gamla þumalputtareglu: Ávexti og grænmeti sem vaxa í hlýjum jarðvegi ætti að geyma í hlýrra umhverfi . Þannig er því farið með eggaldin. Kæling getur skaðað það – það getur upplitast og orðið bronsleitt að lit, sokknir blettir myndast á því og holdið orðið brúnt. Því skal geyma eggaldin á svölum stað grænmetisbakka á eldhúsbekkinum, í búrinu eða úti á svölum. Sama á við um ananas, avókadó, banana, ólífur, kartöfl ur, baunir, paprikur, melónur, grasker o.s.frv.