Svona geymirðu sítrus-ávexti

Sæt og súr

Appelsínur eru sætar; sítrónur eru súrar – en báðir ávextirnir eru fullir af C vítamíni og bragðbætandi fyrir margs konar matrétti. Svo er hægt að auðvelda skrælun: Leggðu appelsínuna í volgt vatn í nokkrar mínútur, þá losnar börkurinn léttar af.

Súrir að utan, sætir að innan

Þú komst heim með körfu fulla af sítrus-ávöxtum – hvað svo? Hvert eiga þeir að fara? Þeir ættu að fara hingað: Appelsínur, mandarínur og klementínur vilja heldur vera í svölu umhverfi , helst milli 2-5 °C. Sítrónur og greipaldin skemmast í ísskáp og skal heldur geyma við 10-15 °C. Límónur fara miðja vegu og unir sér best við 8- 10 °C. Hafðu eftirfarandi þumalputtareglu í huga: Sætari meðlimum fj ölskyldunnar bjóðum við inn (í ísskápinn), þá súrari skiljum við eftir fyrir utan (á eldhúsbekknum) …