Svona veistu hvort ananas er fullþroskaður

Góður í maga

Engin fi ta, smekkfullur af steinefnum og C vítamíni – það eru sannarlega góðar ástæður til að háma í sig gómsætan ananas. Ananas er líka eina þekkta uppspretta ensímsins brómelin, sem er gott við meltingarvandamálum.

Togaðu og slepptu

Til að athuga hvort ananas er fullþroskaður skaltu toga í eitt af blöðunum. Ef það slitnar frekar auðveldlega frá er ávöxturinn fullþroskaður. Ef þessi aðferð er ekki hentug (ef þú ert til dæmis með barninu þínu og vilt forðast uppákomur í framtíðinni, á við „Sjáðu pabbi, ég get slitið blaðið af könglinum, svo ég má borða hann“) geturðu einfaldlega horft og dregið andann djúpt. Ávöxturinn ætti að bera gulleitan brúnan lit, ilmurinn ætti að vera ferskur og mikill.