|
|
Stöðutákn
Það var ekki bragðið heldur útlitið sem gerði appelsínur frægar. Fyrir um 500 árum síðan varð það tíska meðal konunga og aðalsfólks í Evrópu að hafa fullan lund af appelsínutrjám þó að ávaxtanna væri sjaldan neytt (líkt og menn báru hárkollur þó að þeir væru ekki sköllóttir).
|
Líttu á dagatalið
Appelsínur eru bestar að vetrarlagi. Þær eru sneisafullar af C vítamíni og 13 öðrum vítamínum – liturinn og lyktin eru nóg til að þreyja góu og þorra. Getirðu ekki beðið fram að vetri skaltu leita að appelsínum með brúnum blettum – blettirnir eru til marks um gæði. Ef þú kýst heldur sætar appelsínur en súrar skaltu líta á nafl ann. Því stærri sem nafl inn er, því sætari er ávöxturinn (við höfum ekki gáð hvort þessi kenning fái líka staðist um fólk …).
|