Svona veistu hvort kartöflurnar eru í lagi

Kaloríusprengja?

Nei, ekki í samanburði við pasta, hrísgrjón, baunir og brauð. Í 100 g af pasta eru 390 kaloríur, 368 í jafn miklu af hrísgrjónum, 341 í hvítum baunum, 241 í hvítu brauði. En í 100 g af kartöfl um eru aðeins 87 kaloríur. 

Forðastu eiturefnið sólanín

Geta kartöfl ur verið eitraðar? Já, ef þær hafa orðið fyrir höggi (= brúnir blettir) eða setið undir sólarljósi (= hafa orðið grænar). Ef annað af þessu hefur gerst, framleiða kartöfl urnar eiturefnið sólanín, sem getur valdið höfuðverkjum, magaverkjum og niðurgangi. Sólanín er þá í kartöfl unni allri og verður hvorki fj arlægt með suðu, steikingu, bökun eða með því að skera grænu blettina burt. Forðastu því blettóttar og grænar kartöfl ur þegar þú fyllir innkaupakörfuna. Ef þú kaupir kartöfl ur í poka skaltu velja gegnsæja poka til að gæðin sjáist á hverri kartöfl u.