Svona veistu hvort melóna er fullþroskuð

Vodka melóna

Haldirðu veislu geturðu prófað að skera gat ofan á melónuna og fylla í gatið með vodka. Endurtaktu þetta nokkrum sinnum næsta sólarhringinn. Þannig tryggirðu að hold melónunnar mettist af vodka. Berðu hana fram kalda, í bátum eða bitum. Mundu að láta gestina vita af innihaldinu og að ávöxturinn sé ekki ætlaður börnum.

Danglaðu í hana

Maður getur heyrt hvort melóna er fullþroskuð með því að banka laust í skelina. Ef hljómurinn er holur er melónan tilbúin til átu. Þú getur líka skoðað með augunum (í reynd gæti hljóðprufan drukknað í hávaðanum í versluninni). Þegar melónan er fullþroskuð er skel hennar fagurgræn á lit. En hvað um gular melónur? Ef þú lyktar af þeim þar sem  stilkurinn var slitinn af ættirðu að fi nna greinilega melónulykt. Ef engin lykt fi nnst af melónunni er hún ekki nógu þroskuð.