|
|
Skógarkjöt
Sveppi má fi nna í bókum allt aftur til klassíska tímabilsins (um 500 f.Kr.). Sveppir hafa verið ómissandi um aldir, einkum í Suður-Evrópu. Þeir hafa verið nefndir „skógarkjöt“ þar sem þeir eru bæði saðsamir og sneisafullir af steinefnum.
|
Gættu að hattinum og rótinni
Það er auðvelt að sjá hvort sveppur er ferskur. Líttu á hattinn, hann ætti að vera lokaður þannig að tálknin undir honum sjáist ekki. Ræturnar ættu helst enn að vera fastar á, því að rótin er náttúruleg rotvörn; hún lengir líf sveppsins og heldur honum stinnum. Þú gætir vitaskuld tínt þá sjálf/ur. Frá maí til nóvember má fi nna góða garðsveppi á garðblettum sem borið hefur verið á. Villisveppir fi nnast á beitarsvæðum hesta og annarra húsdýra, oft margir saman í beði, frá júlí til október. En til að gæta alls öryggis ættir þú að hafa góða bók um sveppi með í för, ekki viltu stefna gestunum í voða með einni nýstárlegri sveppakássu …
|