|
|
Og hvað með gulrótarsafa?
Ef svo vill til að rifnar gulrætur skilja eftir appelsínugulan hjúp á uppáhalds skálinni þinni sem áður var hvít, skaltu ekki örvænta. Taktu smáræðis matarolíu, helltu henni í skálina og nuddaðu henni inn.
Málið leyst – skálin er eins og ný.
|
Nuddaðu þeim upp úr sítrónusafa
Fátt jafnast á við heimaverkaðar rauðrófur, en hvílíkur sóðaskapur! Rauðar hendur fara hvorki vel við kínverskan silkislopp né gullslegna hælaskó frá Versace. Hvað er þá til ráða, ef liturinn næst hvorki af með burstum né leysiefnum? Taktu hálfu sítrónuna sem þú geymdir í ísskápnum einmitt með svona tilfelli í huga og nuddaðu fi ngrunum duglega í hana. Eftir nokkrar sekúndur verða fi ngurnir hreinir á ný – og ilmandi af sítrónu.
|