Svona má forðast að dreifa bakteríum með uppþvottaburstanum

Að þrífa uppþvottabursta

2 dl. af klóríð blandaðir í 5 lítra af vatni drepa allar bakteríur og eyða súrri lykt. Helltu blöndunni í vaskinn og láttu fötin þín, burstana og svampa liggja í bleyti í tvo, þrjá tíma. Skolaðu síðan nokkrum sinnum með hreinu vatni.

Sjóddu hann

Flest fólk fl eygir uppþvottaburstanum sínum þegar hann er orðinn of andstyggilegur. En það þarf ekki til að koma í veg fyrir að burstinn dreifi sýklum af einu eldhúsáhaldi á annað. Settu burstann einfaldlega með í uppþvottavélina næst þegar þú setur hana af stað. Þannig má gjörhreinsa af honum allar bakteríur. Þú getur líka skolað burstann upp úr sjóðandi vatni. Leggðu það í vana þinn að þrífa burstann reglulega.