Gættu þess að gestir þínir vilji aftur líta við eftir sushiboð

Smáræði um hnífa

Notaðu alltaf sitt hvorn hnífi nn fyrir ólíkar gerðir matvæla. Hníf sem hefur verið notaður á hrátt kjöt, fugl, fi sk eða hrá egg ber að þvo rækilega með heitu vatni og uppþvottalegi, skola í sjóðandi vatni eða setja í uppþvottavél áður en hann er notaður á önnur matvæli.

Skerðu með hreinum hnífum

Þú ert eitthvað að fást við bambusmottuna, reynir að halda saman þangi, hrísgrjónum og laxi í nettri rúllu en áttar þig allt í einu á að þú gleymdir gúrkunni. Hmm …
hýða, strimla, sneiða. Og gúrkan er á sínum stað. En því miður láðist þér að þvo hnífi nn. Og þar stendur hnífurinn í kúnni. Hafi rðu notað eldhúsáhöld á hrátt kjöt þegar þú snýrð þér síðan beint að grænmetinu smitast grænmetið af bakteríum úr kjötinu. Afl eiðingin getur verið hvimleiður magaverkur – eða eitthvað langtum verra.