Svona tryggirðu hreinlæti

Þvoðu þér vel um hendurnar

Slökktu á sjálfstýringunni og fylgdu þessum leiðbeiningum næst þegar þú þværð þér um hendurnar:

1) Taktu af þér hringa.
2) Skolaðu hendurnar með volgu vatni.
3) Þvoðu hendurnar með sápu í um 15 sekúndur.
4) Skolaðu hendurnar og þurrkaðu þær með hreinu handklæði.

Þvoðu þér um hendurnar

Þetta virðist kannski þarfl aus ábending – nógu oft fengum við að heyra hana sem börn – en við endurtökum þessa barnaskólalexíu einu sinni enn því að hendurnar eru upphaf og endir alls hreinlætis í eldhúsinu. Hendur þínar snerta á mörgu á einum degi: nefi , sárum, hári, ruslafötum, klósettsetu, peningum, hurðahúnum og mörgu, mörgu fl eira. Mundu því að þvo þér um hendurnar: Áður en þú hefst handa við potta og pönnur, á meðan á matreiðslu stendur og þegar þú lýkur við undirbúning kjöts og snýrð þér að unnum matvælum. Mundu eftir höndum barnanna þinna, sérstaklega hafi þau verið að leika sér við kisu eða hundinn á heimilinu. Gæludýr geta átt sín eigin gæludýr – og þau geta verið varasöm.