Meðalheimili hendir yfir 100 kíló af grænmeti og öðrum matvælum á ári. Ár eftir ár. Árið inn og árið út. Þennan risavaxna haug má að nokkru leyti skrifa á ranga meðferð við geymslu varnings. Lestu um kælisvæðin þrjú hér í kaflanum Kaldur, kaldari, kaldastur.
Í þessari bók verður ekki reynt að bregða ljósi á þá fjölmörgu eiginleika nútíma ísskápa sem hjálpa til við að halda mat til haga. Sjónum verður hins vegar beint að kælisvæðunum þremur sem finna má í flestum ísskápum: +8 °C, +5 °C, 0 °C. Þessi þrískipting skiptir höfuðmáli upp á geymslu matvæla.
|