Plast, álpappír eða dollu?
Þarna stendurðu með hálffulla skál af fersku guacamole og leitar í skápunum að einhverju til að geyma það í. Pappír? Álpappír? Plastfilmu? Plastdollu? Þú klórar þér í höfðinu, eins og það gæti hjálpað minninu af stað. Þú bara manst ekki hvernig best er að pakka vörum og geyma þær. Hér eru nokkur ráð ef klórið virkar ekki.
Maður pakkar ekki vörum í ljósi nytseminnar einnar. Jafnvel umhverfisyfirvöld og heilbrigðisstofnanir eru sammála um það. Mat, afganga og nesti þarf að geyma þrifalega og með jafn litlum umhverfisáhrifum og hægt er. Það þýðir í stuttu máli: ekkert PVC, engan álpappír, enga plastpoka nema þá sem brotna niður í náttúru, engan heitan mat í plastílát nema þau séu hitaþolin, enga pökkun matar sem hefur verið skilinn eftir á eldhúsbekknum.
|