Fáðu bananana til að þroskast hraðar

Smáræði um þroskaferli

Athugaðu að fullþroskaðir bananar eru líka sætir bananar. Náttúrulega sterkjan í banönum breytist í sykur í þroskaferlinu. Og við viljum heldur hafa kökuna sæta en stífa.

Tuskaðu þá til

Þarna stendurðu og mænir á körfu fulla af hörðum, grænum banönum Þú sem ætlaðir að baka gómsæta bananatertu fyrir afmælisveisluna á morgun. Allt fyrir bí. Engin bananaterta – nema þú fl ýtir þroskaferlinu. Það geturðu gert með því að tuska bananana aðeins til, til dæmis í röku viskustykki. Þurfi rðu marga banana, geturðu sett þá í stóran plastpoka og barið pokanum létt í borðbrún. Innan skamms verða þeir fullveðja.