Svona má koma í veg fyrir að ostur mygli

Þreytt/ur á ostafnyk?

Ef þú geymir ost í innsigluðu íláti er þarfl aust að lesa þetta ráð: Stingdu litlu glasi eða þess háttar íláti með lyftidufti í ísskápinn. Lyftiduftið mun útrýma ostalyktinni hræðilegu hratt og örugglega.

Með plasti eða sykri

Ostar eru félagsverur. Þeir una sér best hver í grennd við annan, einangraðir í plastíláti, því þannig halda þeir hver á öðrum raka. Þeim er hins vegar líka annt um sitt einkarými og vilja helst ekki snerta hver annan. Þú getur geymt allt frá norskum geitaosti til Gouda og gráðaosta í marga mánuði en ólíkar gerðir osta ættu ekki að dvelja saman lengi í senn. Ef þig tekur að vanta ílát má stinga nokkrum sykurmolum inn með ostinum, það tefur líka fyrir myglu.