|
|
Smáræði um álpappír
Álpappír er einkum notaður til að pakka inn mat til geymslu. Málmurinn verndar innihaldið vandlega án þess að snerta það og án þess að smita það af nokkru bragði. Í mörgum tilfellum er notaður álpappír sem er þakinn með plasti eða pappír.
|
Pakkaðu þeim inn og kældu
Sítrónur haldast ferskar lengur ef þú pakkar þeim inn í álpappír og kemur þeim fyrir í ísskápnum. En aðeins heilar sítrónur! Safi nn úr skornum sítrónum getur leyst upp álþynnuna og skapað rammt járnbragð vegna sýrustigs ávaxtarins. Hið sama gildir um annan súran mat, á við súrsaðar gúrkur, skorna tómata og rauðbeður. Súr matvæli sem búið er að opna er best að geyma í gleri, keramikílátum eða plastskálum og þétta ílátið með plastfi lmu.
|