Head nõuanded on kogumist väärt

Sneiðum, skerum, söxum

Matreiddu án mikils fyrirgangs

Sem betur fer, fyrir okkur hin, hafa atvinnukokkar ekki einkaleyfi á góðum eldhúsráðum þegar kemur að því að skera, saxa, sneiða og framreiða mat án of mikils fyrirgangs. Allir geta fengið sína sneið af kökunni.

Skurður

Lærðu að nota réttu áhöldin

Ekkert er eins ljúffengt og rækjusamloka gerð úr ferskum rækjum beint úr skelinni. En það skyggir á ánægjuna að fá upp í sig skeljar og görn í hverjum bita.

Litir

Litir eru lystaukandi

Viltu að gestirnir klári matinn sinn í stað þess að narta aðeins kurteisislega í hann? Mundu þá að flestir nálgast matinn með eftirfarandi hætti: Þeir horfa og sjá hvort maturinn er girnilegur. Ef svo er gleypa þeir hann í sig, annars endar hann í ruslinu.

Sælkeramatur

Það er gaman að elda góðan mat

Sumir halda að einungis fólk sem talar um mat með erlendum hreim sé fært um að elda góðan mat og jafnframt að allir kokkar með snefil af sjálfsvirðingu hljóti að notast við flóknar uppskriftir með mörgum flottum útlenskum orðum. Þvílík endemis vitleysa!

Leiðavísir um ofninn

Eldavélin, keramik, gas, span

Eldavélin, keramik, gas, span

Ef þú ert að fá þér nýja eldhúsinnréttingu er fullkomið tækifæri til að skipta út gömlu hlussueldavélinni fyrir nýja og umhverfisvæna hönnun. Eina vandamálið er að velja eldavélina.

Tilbúið

Ráð undir nefi hverju

Það er ekkert að því að nota kjöthitamæli sem segir til um það hvenær maturinn er tilbúinn. En hvers vegna að reiða sig á verkfæri þegar hægt er að læra einfaldar aðferðir? Og hvernig stingur maður hitamæli í egg?

Hreingerning

Nóg komið af ryki og kámugum fingraförum

Nóg komið af ryki og kámugum fingraförum

Vel hannað, opið eldhús stendur fyrir alsnægtir, samlyndi og félagslegt samneyti. Þess vegna eru þau partur af svo mörgum nútímaheimilum. Það eina sem fólk virðist gleyma í þessu sambandi er að því stærra sem eldhúsið er því meira þarf að þrífa.

Komdu þér fyrir í uppáhalds hægindastólnum þínum á rólegum eftirmiðdegi og njóttu þess að uppgötva skemmtilega hluti. Í bókinni eru ábyggilega einhver góð ráð sem lokka þig aftur inn í eldhús þaðan sem þú áður flúðir angistarfullur (eftir að hafa í áraraðir hlustað á sælkerakokka halda því fram að það að elda góðan mat sé mikil list og vandasöm – mjög vandasöm). Þú getur einnig ráðfært þig við MMMbókina endrum og eins þegar þig vantar góð ráð. Það gætu verið mjög gagnleg ráð, til dæmis þegar þú þarft að koma í veg fyrir fölgráa maísstöngla, sósufælni, kjúklingablóðbað, tzatziki-kjúkling á kafi í vökva og aðrar hamfarir í eldhúsinu.

Gorenje vonar að þú skemmtir þér vel með MMM.