Vel hannað, opið eldhús stendur fyrir alsnægtir, samlyndi og félagslegt samneyti. Þess vegna eru þau partur af svo mörgum nútímaheimilum. Það eina sem fólk virðist gleyma í þessu sambandi er að því stærra sem eldhúsið er því meira þarf að þrífa.
Hljómar þetta kunnuglega? Teitið er nýyfirstaðið og það stirnir á eldhúsið sem virðist æpa: „Sjáið mig - notið mig“. Heildarmyndin verðskuldar að við stöldrum við og leyfum henni að njóta sín aðeins lengur. Sjáið glampandi hreint gólfið Hvergi er ryk sjáanlegt og engar matarleifar fastar í gólfinu. Dragðu djúpt andann og njóttu ilmsins af hreinu viðargólfinu. Mundu þetta augnablik því það tekur fjölskylduna, hungur, skítuga skó, sand, nestisafganga, hundadall, fótbolta og aðra fylgifiska hversdagslífsins aðeins um það bil tvær mínútur að færa eldhúsið aftur í fyrra horf. Þess vegna er tiltektarráðum aldrei ofaukið. Þau færð þú á næstu síðum.
|