Svona kemur þú í veg fyrir að beikonfita slettist um allt við steikingu

Kartöflur fjarlægja fingraför

Það þarf ekki mikið til að fá kámug fingraför út um allt. Til dæmis á slökkvara. Sem betur fer þarf heldur ekki mikið til að fjarlægja þau. Skerðu kartöflu í tvennt og nuddaði skurðfletinum yfir fingraförin. Þurrkaðu kartöflusafann af með tusku. Slökkvararnir eru nú hreinir og fínir á ný.

Steiktu á dagblaði

Ímyndaðu þér sunnudagsmorgun. Ástin þín var að útbúa handa þér yndislegan „brunch“ með fullt af eggjahræru, steiktum pylsum og beikoni. Allt er heitt og gott og þú ert í þann mund að opna dagblaðið og svífa inn í yndislega og friðsæla veröld. En fyrst verður þú að fjarlægja fitublettina sem hafa slest á flísarnar og eldavélina. Þegar allt er orðið hreint er maturinn kaldur og kaffið volgt. Næst skaltu taka fram dagblaðið áður en þú steikir. Leggðu það yfir eldavélina; settu pönnuna þar ofan á og steiktu. Pappír milli spanhelluborðsins og pönnunnar sogar í sig fitu svo hún slettist ekki á helluborðið sjálft. Þetta má aðeins gera á spanhellum þar sem yfirborð þeirra hitnar ekki.