Svona losnar þú við að berjast við brenndan sykur á bökunarplötunni

Komdu í veg fyrir að kakan flæði upp úr kökumótinu

Ef þú vilt baka stóra, yndislega köku getur þú notað stærstu ofnskúffuna á markaðnum sem er frá Gorenje og er 5 sm djúp. Þú gætir sloppið við að baka tvær kökur og kökudeigið sullast síður niður í ofninum.

Þektu hana með bökunarpappír

Litla stelpan þín á afmæli og að sjálfsögðu verður hún að fara með rétttrúaða köku í skólann. Með öðrum orðum, enga bakarísköku, ekkert kökumix úr pakka og enga trans-fitu. Þú brettir því upp ermarnar, hefst handa og eftir nokkrar klukkustundir, voila. Lífræn afmæliskaka sem mun vekja undrun og aðdáun er orðin að veruleika. Það eru einnig klukkustundirnar sem munu fara í að þrífa brenndan sykur af bökunarplötunni. Nema þú hafir, og hér kemur lausnin, þakið bökunarplötuna með bökunarpappír sem þú getur nú fjarlægt og hent í ruslið. Það er svo miklu auðveldara en að leggja bökunarplöturnar og grindurnar í bleyti í baðkarinu.