|
|
Fínar hendur
Ef þú býrð til ylliberjasafa er best að velja til þess dag sem þú þarft ekki að vera vel til fara. Hendurnar geta auðveldlega litast rauðar. Ef þú færð óvænta gesti er til leið til að losna við litinn af höndunum. Nuddaðu hendurnar með hálfri sítrónu eða sítrónusafa. Það ætti að duga.
|
Sjóddu í þeim rabarbara
Þegar fjölskyldan hefur skemmt sér vel við leik í sundlauginni, spil og strandleiki má enn finna fullt af skemmtun í trjánum. Það tekur til dæmis tíma að týna ylliber af trjánum (hugsaðu um allan ísinn sem þú sparar þér á meðan krakkarnir eru úti að týna ber) og það er auðvelt að búa til djús úr berjunum. En sá böggull fylgir skammrifi að berin lita pottana þína. Hér er því ráð til að komast undan vandamálinu. Sjóddu smá náttúrulega sýru í pottunum – lauk, sítrónusafa, rabarbara eða epplahýði í vatni. Potturinn verður eins og nýr. Passaðu samt að skilja þessa hluti ekki of lengi eftir í pottinum – hann gæti upplitast.
|