|
|
Nákvæm hitastýring
Spanhellur hafa 12 hitastillingar, frá 50 vöttum (fyrir súkkulaði) og allt upp í 3200 vött (helmingi meira en hefðbundnar eldavélar og gashellur). Og ef þú finnur ekki lítinn pott laga hellurnar sig ósjálfrátt að stærð pottsins. Þegar þú slekkur á hellunni kólnar yfirborðið samstundis.
|
Notaðu spanhellur
Konfektgerð getur verið hugguleg jólahefð hjá fjölskyldunni. En gamanið kárnar þegar súkkulaðið brennur við í pottinum. Til þess að koma í veg fyrir það skaltu nota spanhellur. Með spanhellum getur þú stýrt hitanum með einni snertingu og viðbragðstími eldavélarinnar er afar skjótur. Það er mjög gagnlegt þegar bræða á súkkulaði og við aðra matseld sem er næm fyrir hita. Þegar hellurnar bregðast strax við er engin hætta á að maturinn sjóði upp úr eða brenni við. Þú getur jafnvel brætt súkkulaði án tvöfalds suðupotts.
|