Viltu að gestirnir klári matinn sinn í stað þess að narta aðeins kurteisislega í hann? Mundu þá að flestir nálgast matinn með eftirfarandi hætti: Þeir horfa og sjá hvort maturinn er girnilegur. Ef svo er gleypa þeir hann í sig, annars endar hann í ruslinu.
Það er ekki erfitt að framreiða litríkan mat. Skipuleggðu bara máltíðina eins og þú sért að ákveða í hverju þú ætlir að vera. Hugsaðu um andstæður. Komdu auganu á óvart. En hvernig? Hvernig getur þú hleypt fjöri í dæmigerða ófrumlega hlaðborðið þitt svo það verði ómótstæðilegt? Hvernig er hægt að útbúa sjónræna veislu á jóladiskinn þegar efniviðurinn er blómkál? Hvernig býr maður til bakkelsi sem vekur öfund og aðdáun á sumarfagnaði leikskólans? Lestu áfram til að læra meira.
|