Svona haldast bananarnir í lagkökunni gulir

Banani í afmælisdressið?

Bananablettir verða brúnir því safinn í þeim oxast. Það er vissulega fúlt en allt sem þú þarft að gera er að væta blettinn aðeins. Settu smá glýserín á blettinn og bíddu í um það bil tíu mínútur. Þvoðu blettinn síðan upp úr soðnu vatni sem hefur verið kælt niður í líkamshita. Þú getur einnig notað munnvatn. Hráki er sagður koma í veg fyrir oxun. Spýttu bara ekki á bananana!

Gefðu þeim smávegis að drekka

Flestir vita að ef sítrónusafi er settur á hálft grænt epli helst eplið grænt en verður ekki brúnt (ef þú vissir þetta ekki færð þú hér aukaráð í kaupbæti). En hvað er hægt að gera við bananasneiðar sem, eins og eplin, verða brúnar ef þær eru látnar standa (og brúnar bananasneiðar eru bara alls ekki fínar á lagköku). Svarið: Gefðu þeim smávegis að drekka. Ef þú vilt hressa upp á veisluna, gefðu þeim sérrí. Ananas- eða sítrónusafi gerir líka sitt gagn.