|
|
Blaðgræna hvað?
Grænn matur er hitaeiningasnauðari en flestar fæðutegundir. Hann inniheldur lítinn sykur og er einstaklega næringarríkur. Grænn matur spannar allt frá einfruma þörungum til blómstrandi plantna sem allar eiga nokkuð sameiginlegt. Blaðgrænu Það er blaðgrænan sem gefur plöntunum grænan lit og það má hugsa sér hana sem „blóð“ plöntunnar.
|
Settu þær í kalda sturtu
Grænt grænmeti er í eðli sínu viðkvæmara en annað grænmeti. Ef þú geymir það um stund í hita glatar það bragðinu, ferskleikanum, stökkleikanum, litnum og vítamínunum. Og hver vill framreiða hergrænt og grátt grænmeti sem er fátækt af A, B, C, D og E-vítamíni? Næst þegar þú útbýrð grænmeti, til dæmis belgbaunir, skalt þú því prófa þetta: Bleiktu í sjóðandi vatni. Taktu þær úr vatninu og hreinsaðu undir köldu rennandi vatn eða settu þær í stutt ísbað Þegar gestirnir eru búnir að fá fordrykkinn sinn og kominn tími á að framreiða matinn skaltu hita baunirnar á ný. Allt grænmeti sem inniheldur blaðgrænu (ekki gulrætur, maís, tómatar og annað litríkt grænmeti) ætti að hita á síðustu stundu.
|