|
|
Sítróna berst við eggjarauðu
Tókstu eftir smá eggjarauðu í skálinni með eggjahvítunum? Það er óþarfi að henda barninu út með baðvatninu. Bættu einfaldlega nokkrum dropum af sítrónusafa út í eggjahvíturnar og þá getur þú þeytt þær eins og venjulega.
|
Því gulari, því betra
Orðtækið segir okkur að dæma ekki bókina eftir kápunni. Hið sama gildir um egg. Litur skurnarinnar gefur ekkert til kynna um gæði, bragð eða næringargildi eggsins. Litur eggjaskurnarinnar veltur eingöngu á kynstofni hænunnar og erfðaþáttum. ef þú vilt vita hvort þú ert með „gullegg“– fyrsta flokks gæðaegg – í höndunum, verður þú að skoða eitthvað annað en skelina. Brjóttu eggið (við mælum með því að þú kaupir það fyrst). Litur eggjarauðunnar stjórnast af fæði og aðstæðum hænunnar og segir til um gæði eggsins. Því gulari, því betra.
|