Svona vekur þú aðdáun í sumarveislunni

Náttúrulegur roði

Ef þú vilt ná fram rétta bleika litnum á marsipangrísnum skaltu nota rauðrófusafa í stað matarlitar. Hann er ekki bara náttúrulegur heldur líka ódýrari. Og ef þú ert í skapi fyrir bleikt gætir þú líka bætt matskeið af rauðrófusafa í deigið þegar þú bakar marengskökur. Þá verða þær fallega bleikar, fullkominn eftirréttur fyrir prinsessur.

Bakaðu rauðrófusafa

Enn og aftur hefur þú krossað við „ég býð mig fúslega fram til að baka brauð fyrir sumarhátíðina“ á listanum á leikskólanum og nú ertu við það að fara yfir um á taugum. Hvað í ósköpunum áttu að taka til bragðs? Franskt brauð? Nei þú bakaðir það í fyrra. Súrdeigsbrauð? Nei, það tekur of langan tíma. Rauðrófubrauð? Það er litfagurt, frumlegt, allir munu dást að framlagi þínu og geislabaugur þinn mun skína líkt og brauðið í brauðkörfunni. Brauðið verður með rauða skorpu (um það bil 1 sm) og gult innan í. Hafðu ekki áhyggjur af rauð-rófubragðinu, hveitið slær á bragðið. Líkt og brauðið slær í gegn.