Svona getur þú boðið jólagestum upp á snjóhvítt blómkál

Úff, soðið blómkál

Blómkál getur fyllt íbúðina af leiðinlegri lykt þegar það er eldað. Prófaðu að bæta þurrum brauðbita eða ögn af lyftidufti í vatnið á meðan það sýður. Það ætti að deyfa lyktina.

Sjóddu það í vatni

Jólamáltíðin er á næsta leyti. Þú hefur ákveðið að elda hunangsgljáða önd með fersku grænmeti og rauðvínssósu og ert þegar komin(n) vel á veg. Öndin er gljáð. Kartöflurnar og rauðvínssósan eru tilbúin. Gulræturnar og spergilkálið sjóða. Þú átt bara eftir að sjóða blómkálið sem mun toppa þess sjónrænu veislu eins og litlir sætir snjóboltar á jóla-disknum. Hér mælum við satt að segja með hvítum snjóboltum, ekki snjóboltum sem hund-urinn hefur litað með þvagi sínu. Svona ferðu að: Sjóddu blómkálið í vatni með tveimur matskeiðum af mjólk út í. Þannig verður blómkálið þitt hvítt.