|
|
Hversdagslegar kexkökur? Skreyttu með myntu
Engin ástæða er til að örvænta þótt gesti beri að garði og þú eigir ekkert að bjóða nema hversdagslegar kexkökur. Sigtaðu yfir þær flórsykri og skreyttu með myntu, hjartafró, ferskum berjum eða öðru því sem átt og sem getur hresst aðeins upp á þær. Mundu að flórsykur er fljótur að draga í sig lit. Ferskum ávöxtum og rökum skreytingum ætti að bæta við rétt áður en kökurnar eru bornar fram.
|
Þeyttu með salti
Hljómar þetta kunnuglega? Sama hversu mikla ástúð og góða orku þú leggur í kexkökudeigið verður það aldrei alveg eins og þú vilt hafa það. Í hvert skipti verður þú að viðurkenna að heimabökuðu kexkökur tengdamömmu eru einfaldlega betri en þínar. Þú getur alveg lifað með þessari staðreynd, en ef þú vilt samt sem áður efla eigið sjálfstraust, gætir þú, næst þegar þú þeytir egg í kexkökudeigið, bætt smá salti út í þau. Þannig getur þú átt gullnar kexkökur í kökuboxinu næst þegar óvænta gesti ber að garði. Það gæti verið tengdamamma þín.
|