| Gerðu rísottó með bláberjum, ítalskan sérrétt. |
Blátt rísottó |
| bættu teskeið af sykri út í smjörlíkið/feitina þegar þú steikir kjúkling. Þetta gefur húðinni fallegan brúnan lit og gerir hana yndislega stökka. |
Brúnaður kjúklingur |
| Bættu einni teskeið af sykri í kjöthakkið til að fá fallega brúnar kjötbollur. |
Brúnaðar kjötbollur |
| Á miðöldum var gulrótasafi notaður til að gefa smjöri girnilegri gulan lit á veturna þegar kýr voru ekki á beit. Enn í dag er þetta einföld leið til að hressa upp á smjörið. |
Gulrótalitað smjör |
| Bættu við nokkrum dropum af litarefni; kremið fær á sig fallega brúnan lit án þess að það hafi áhrif á bragðið. |
Súkkulaðibrúnt kökukrem |
| Ef þú vilt gult pasta skaltu bæta í það gulrótasafa, bættu við bleki ef þú vilt svart pasta, tómötum ef þú vilt rautt pasta og spínati ef þú vilt grænt pasta. |
Litríkt, heimagert pasta |
| Bættu teskeið af lyftidufti út í vatnið sem þú sýður grænmetið í. Þá heldur það lit sínum frekar. |
Litríkt grænmeti |
| Bættu smá tómatmauki út í sósuna til að dýpka lit hennar. |
Dökkbrún sósa |
| Ef þú bætir matskeið af olíu eða smá lyftidufti út í sjóðandi vatnið verða baunirnar grænar af öfund. |
Baunir, grænar af öfund |
| Ef þú vilt að kjötsósan verði girnilega brún skaltu brúna hveitið fyrst í ofninum. |
Kjötsósa |
| Sjóddu húð af rauðlauk með eggjunum. |
Fjólublá egg |
| Ef þú þarf að sjóða þær saman skaltu vefja þeim í álpappír. Þetta kemur í veg fyrir að liturinn leki og smiti út frá sér. |
Rauðar rauðbeður og gular gulrætur |
| Skreyttu afmæliskökuna þína með kremi sem er litað með hindberjasafa. |
Rautt kökukrem |
| Keyptu rauð kínversk gergrjón sem eru ræktuð með monascus purpureus-geri. Hafðu engar áhyggjur. Að sjálfsögðu eru þau ekki eitruð. |
Rauð hrísgrjón |
| Notaðu rauðrófulitaðar gulrætur í stað venjulegra appelsínugulra. |
Fjólublátt hrásalat |
| Með fáeinum dropum af sítrónusafa í suðuvatninu verða hrísgrjónin merkilega hvít. |
Hvít grjón |
| Bættu fáeinum saffran-þráðum í jólakökuna svo að deigið fái á sig fallegan gulan lit. |
Gular kökur |
| Bættu við túrmeriki til að fá freistandi, gul hrísgrjón. |
Gul hrísgrjón |