|
|
Óvinir? Spýting eða kynskipti
Þegar smokkfiskur er hræddur sprautar hann bleki úr kjaftinum til að dreifa kringum sig og hræða óvininum. Þegar það tekst ekki getur smokkfiskurinn skipt fyrirvara-laust um lit og lögun og hreyft sig öðruvísi en áður. Lítill karlkyns smokkfiskur getur breytt útliti sínu svo hann líkist saklausu kvendýri. Og maður lemur ekki stelpur.
|
Bættu út í það bleki
JIBBÍÍÍÍ!! Stelpukvöld á laugardegi. Nú ætla stelpurnar að slúðra og skemmta sér! En það þarfnast undirbúnings að fá tólf skvísur í heimsókn. Jafnvel þótt vinkonur séu nánar þegar þær ræða um það hvort menn í g-strengjum séu æsandi eða ekki, skrá þær ósjálfrátt niður í huganum hvernig heimili þitt er, matseðillinn, plönturnar og rykið. Hvernig væri því að bera fram svartan rijsttafel-rétt sem stelur allri athyglinni. Þetta er svo auðvelt: Bættu bara litlum pakka af smokkfiskableki í hrísgrjónin (fæst í búðum sem selja asískar vörur og má einnig nota í pasta).
|