Sumir halda að einungis fólk sem talar um mat með erlendum hreim sé fært um að elda góðan mat og jafnframt að allir kokkar með snefil af sjálfsvirðingu hljóti að notast við flóknar uppskriftir með mörgum flottum útlenskum orðum. Þvílík endemis vitleysa!
Við skulum hrekja þessa hugmynd: Það þarf ekki að vera erfiðara eða tímafrekara að elda mat sem við fáum vatn í munninn af. Michelin-stjörnur á nafnspjaldinu eða þekking á muninum á haute cuisine og nouvelle cuisine er ekki skilyrði þess að þú megir setja upp svuntu og grípa daginn. Allir geta átt góða stund við eldamennsku. En eins og alltaf í lífinu verður þú að þora að prófa og að sjálfsögðu þarft þú að fá góð frá matgæðingum. Þau færð þú á næstu síðum. Hallaðu þér aftur í stólnum, lestu, njóttu og mundu að það er gaman að elda.
Bon appetit!
|