Hvernig vekja má aðdáun með kássu

Kryddjurtir vinna eftir klukkunni

Mundu þetta þegar þú berð fram mat: Kryddjurtir eru viðkvæmar. Um leið og þær eru skornar gefa þær frá sér ilmolíur út í andrúmsloftið eða í réttinn sem þær skreyta. Ef þú blandar þeim við sítrónu eða edik verða kryddjurtirnar dökkar á innan við klukkustund svo þú skalt strá þeim yfir réttina rétt áður en þú berð þá fram.

Skreyttu smekklega

Osso buco er sígildur ítalskur réttur. Hann er vissulega ljúffengur en eftir nokkra tíma í „sánunni“ geta kálfakjötið, tómatarnir, gulræturnar, rósmarínið, salvían og sítrónubörkurinn auðveldlega orðið þreytuleg útlits. Þess vegna skalt þú hressa upp á bucoið eins og atvinnumennirnir gera. Saxaðu blöndu af ferskum kryddjurtum eins og steinselju, basiliku, rósmaríni og timíani og stráðu yfir réttinn. Mmmmmmmmmmm.