|
|
Blóm í salatið
Skreyttu salatið með ætum blómum. Af nógu er að taka: Klukkubróðir, jasmína, yllir, hjólkróna, rósablöð, lofnarblóm, blágresi og blóm kryddjurta – graslauks, salvíu, basiliku og klettasalats.
|
Berðu fram blágresi
Viltu slá í gegn? Heillaðu gestina með ilmandi, pastellituðu blágresi. Blóm eru það nýjasta í eldhúsum stjörnukokkanna. Kokkar gera tilraunir, bleikja, gljá og skreyta með frumlegum, ilmandi blómum. Ef brúðkaup eða sumarveisla er í vændum skaltu koma gestunum á óvart með blágresi. Fjölmargar tegundir eru fáanlegar sem bragðast og ilma eins og engifer, súkkulaði/mynta, ilmolía, rósir, sítrónur, súraldin, moskus og kókos. Þú gætir til dæmis soðsteikt rabarbara og borið fram með blágresi, þeyttum rjóma og greninálum. Mmm. Þetta bragðast jafnvel betur en það hljómar. Einnig getur þú notað blágresi sem ætilegt skraut. Hvort sem þú skreytir með því eða blandar verður þú afar, afar smart.
|