Sælkeralögmálin tíu

Sælkeralögmálin tíu

1 Notaðu aðeins bestu fáanlegu hráefni. Þau eru kjarni máltíðarinnar. Hvernig finnur þú bestu hráefnin? Notaðu skilningarvitin þegar þú fyllir innkaupakörfuna. Þefaðu, horfðu, hlustaðu.
2 Gerðu ekki innkaupin sama dag og þú átt von á gestum. Hvers vegna að stressa sig á að finna hráefnin í búðunum samdægurs?
3 Hafðu það einfalt. Því einfaldara, því betra. Það er erfitt að elda.
4 Brýndu hnífana áður en þú hefst handa. Á eftir höndunum eru hnífarnir mikilvægasta verkfæri kokksins. Það er betra að eiga einn beittan hníf en marga bitlausa. Mundu eftir að þvo hnífinn með sápu og heitu vatni þegar þú skiptir milli fæðutegunda.
5 Gefðu þér tíma til að njóta eldamennskunnar. Matreiðsla ætti að vera ánægjuleg, ekki leiðindaverk. Ef þú þolir illa óvæntar uppákomur skaltu undirbúa þig og vera búin að skoða uppskriftina áður en þú hefst handa.
6 Miðlaðu málum. Ef þú ert í tímaþröng skaltu ekki hika við að nota baunir úr dós í kássuna, góða tilbúna dressingu á salatið og forsoðnar kartöflur úr frystinum. Góðir kokkar eru ekki öfgamenn.
7 Vertu góð við sjálfa þig og hugsaðu „Þetta gengur vel já mér, mikið verður þetta ljúffengt!“ Neikvæð orka á ekki heima í eldhúsinu.
8 Kryddaðu jafn óðum og hafðu þá alla máltíðina í huga. Hugaðu að andstæðum þegar þú setur saman matseðilinn: Stökkt, mjúkt, heitt, kalt, kryddað, milt, súkkulaðibrúnt, jarðarberjarautt, gult og blátt. Bragðskyn þitt og sjón þrá eitthvað nýtt.
9 Láttu kjötið jafna sig eftir steikingu. Þá heldur það eftir safanum og hann lekur ekki úr því þegar þú skerð það. Það er óþarfi að taka það fram að blóðugur kjötsafinn er ekki mjög lystaukandi þegar hann bland-ast saman við fínu sósuna.
10 Láttu gestina bíða eftir matnum, ekki láta matinn bíða eftir gestunum. Þú skemmir matinn með því að halda honum heitum. Byrjaðu alltaf á því sem tekur lengstan tíma áður en gestirnir koma. Þá getur þú ein-beitt þér að kryddjurtunum, viðkvæma grænmetinu og öllu því sem þarf að útbúa á skömmum tíma.